„Ætluðum að vera komin lengra“

Bjarni Benediktsson fyrir fundinn í morgun í ráðherrabústaðnum.
Bjarni Benediktsson fyrir fundinn í morgun í ráðherrabústaðnum. mbl.is/​Hari

„Þetta er verk sem tekur nokkra daga, kannski aðeins lengri tíma en við höfðum gert ráð fyrir en það hefur ekkert komið upp á sem veldur manni áhyggjum. Þetta er bara þannig að allir vilja vanda sig,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fyrir fund sinn með formönnum Vinstri grænna og Framsóknarflokksins í ráðherrabústaðnum í morgun.

Spurður út í stór, óútkljáð mál á milli þeirra sagði hann ekkert eitt koma upp í hugann. „Öll mál sem menn vilja setja í stjórnarsáttmála skipta máli. Við vonum bara að allir sýni því skilning að þetta þarf sinn tíma.“

Bjarni var einnig spurður hversu  mikinn tíma hann sæi fyrir sér í viðræðurnar í viðbót. „Við ætluðum að vera komin lengra en þótt það fari vikan í þetta þá verður það bara að vera þannig.“

Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson í ráðherrabústaðnum …
Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson í ráðherrabústaðnum í morgun. mbl.is/​Hari

Hann sagði að formennirnir hefðu aðeins rætt mjög gróflega um skiptingu ráðuneyta og kvaðst ekki hafa komist að neinni niðurstöðu um hvort hann stefndi á að fara í fjármálaráðuneytið á nýjan leik. „Þetta er hluti af því sem við eigum eftir að útkljá,“ sagði og vildi ekki tjá sig um hvort það kæmi til greina að hann færi í annað ráðuneyti.

Bjarni sagði flokkana þrjá vera „ágætlega“ á sömu blaðsíðu. „Það vita allir að flokkarnir hafa ólíkar áherslur en ég hef talað um það í meira en ár að það séu sérstakar aðstæður uppi núna. Við erum að upplifa lengsta samfellda hagvaxtarskeið Íslandssögunnar og við verðum að taka höndum saman á vettvangi stjórnmálanna til þess að nýta þær einstöku aðstæður til þess að byggja upp landið og ná árangri við að sækja fram í átt að betri lífskjörum,“ sagði hann.

„Það má ekki gerast að órói á stjórnmálasviðinu verði til þess að tækifæri glatist hér í efnahagsmálum og fyrir landsmenn alla. Til þess að ná utan um þessa stöðu höfum við sest núna saman og ég hef mikla trú á að það geti skilað miklum árangri,“ bætti Bjarni við og kvaðst vera bjartsýnn á að þessi ríkisstjórn tæki við völdum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert