Mikilvægur áfangi fyrir íslenskt viðskiptalíf

Flest rafræn skilríki hafa verið fyrir debetkort en nú færist …
Flest rafræn skilríki hafa verið fyrir debetkort en nú færist í aukana að þau séu sett í farsíma. Það gæti aukið notkun rafrænna skilríkja. mbl.is/Rósa Braga

Neytendastofa hefur hefur lokið við innleiðingu á Áreiðanlegum lista (e. Trusted List) en það er forsenda þess að rafrænar undirskriftir frá Íslandi séu viðurkenndar og samþykktar á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Neytendastofa segir þetta mikilvægan áfanga fyrir íslenskt viðskiptalíf og stjórnvöld.

Undirskriftir með rafrænum skilríkjum í viðskiptum og í samskiptum við stjórnvöld á Evrópska efnahagssvæðinu hafa fullt lagagildi með sama hætti og undirritun með eigin hendi, að því er segir í frétt á vef Neytendastofu.

Fram kemur, að í samræmi við EBreglur beri Neytendastofu, sem fer með eftirlitið með rafrænum undirskriftum, skylda til að stofna, viðhalda og gefa út áreiðanlega lista um vottunaraðila fyrir fullgildar rafrænar undirskriftir á öruggu vefsvæði sem viðurkenndir séu af stjórnvöldum og njóta trausts. 

„Áreiðanlegur listi inniheldur lágmarksupplýsingar um vottunaraðila sem gefa út fullgild vottorð til almennings og eru undir eftirliti Neytendastofu. Markmiðið með áreiðanlegum lista er að unnt sé að staðfesta með fljótvirkum og áreiðanlegum hætti fullgildar rafrænar undirskriftir af hálfu útgefanda sem falla undir eftirlit Neytendastofu. Með þessu er tryggt að lágmarksupplýsingar liggi alltaf fyrir um eftirlitsskylda vottunaraðila sem gefa út fullgild vottorð og að undirskriftin sé gerð með öruggum undirskriftarbúnaði. Þetta er mikilvægur áfangi fyrir íslensk viðskiptalíf og stjórnvöld og mun greiða fyrir notkun og tryggja að rafræn skilríki gefin út á Íslandi njóti trausts á EES-svæðinu,“ segir á vef Neytendastofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert