Jarðskjálfti sem mældist 7,4 reið yfir í Mexíkó nú síðdegis að því er Reuters-fréttastofan hefur eftir bandarísku jarðfræðistofnuninni. Skjálftans varð vel vart í höfuðborginni Mexíkó. Engar fréttir hafa enn borist af mannfalli eða skemmdum.
Skjálftinn varð um 8 km suðaustur af Atencingo, í Puebla-fylki sem er nágrannafylki höfuðborgarinnar og á 51 km dýpi.
Luis Felipe Puente, yfirmaður almannavarna Mexíkó, sagði á Twitter nú fyrir skemmstu að engar fréttir hefðu enn borist af skemmdum eða mannfalli vegna skjálftans.
Jarðskjálftinn olli skelfingu í Mexíkóborg, þar sem tuttugu milljónir manna búa, en fyrr í dag var efnt til stórrar æfingar í borginni á viðbrögðum við jarðskjálfta. Var það gert í tilefni að því 32 ár eru í dag liðin frá því að skjálfti varð sem mældist 8,0. Þá fórust fimm þúsund manns og gríðarlegar skemmdir urðu í borginni.
Uppfært klukkan 19:50
Fréttir hafa borist af fólki sem er fast undir byggingum sem hafa hrunið, engar fregnir hafa þó enn borist af manntjóni. Þá er eldur sagður loga á nokkrum stöðum í höfuðborginni og eins hafa borist fregnir af skemmdum í nærliggjandi borgum af völdum skjálftans.