Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er tilbúin að veita Bretum frest til 31. október til að ná samkomulagi um nýtt samkomulag um brotthvarf Breta úr Evrópusambandinu, Brexit. Það er 40 dögum lengri frestur en Merkel sagðist vera tilbúin að veita í gær.
Ný lausn varðandi landamæri Norður-Írlands og Írlands er helsta ákvæðið sem nýr samningur þarf að innihalda.
„Kannski getum við gert þetta innan þrjátíu daga, hvers vegna ekki?” sagði Merkel á blaðamannafundi í Berlín með breska forsætisráðherranum Boris Johnson í gær.
Merkel hefur hins vegar skipt um skoðun. „Þetta snýst ekki um 30 daga heldur er fresturinn tákn um það sem hægt er að gera á stuttum tíma,“ sagði Merkel á blaðamannafundi með Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, í Haag í dag.
31. október er einmitt dagurinn sem Bretar fara úr Evrópusambandinu og að öllu óbreyttu verður það án samnings.