William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir röð mistaka hafa leitt til dauða auðjöfursins og kynferðisglæpamannsins Jeffrey Epstein.
Barr hefur áður sagt að sér hafi blöskrað, og að hann hafi í raun snöggreiðst, þegar hann hann komst að því hvernig Metropolitan fangelsinu hefði mistekist að tryggja öryggi fanga sem þar dvelja. Segir hann óregluna í fangelsinu valda miklum áhyggjum og að komist verði til botns í málinu og stjórnendur dregnir til ábyrgðar.
Epstein sem hafði verið ákærður fyrir mansal, hafði verið tekinn af sjálfsvígsvakt þrátt fyrir að hann hefði gert tilraun til slíks í júlí, mánuði áður en hann fyrirfór sér í fangaklefa sínum.
Tveir fangaverðir sem voru á vakt ágústnóttina þegar Epstein svipti sig lífi hafa verið ákærðir fyrir að falsa fangelsisgögn, en þeir áttu að fylgjast með Epstein á hálftíma fresti en gerðu ekki. Í gögnum fangelsisins kemur hins vegar fram að þeir hafi sinnt eftirlitinu sem skyldi. Í ákærunni kemur einnig fram að þeir hafi sofið á vinnutíma og vafrað á netinu.
Barr hefur sjálfur skoðað myndefni úr öryggismyndavélum sem sýnir að enginn hafi haft eftirlit með Epstein nóttina sem hann tók eigið líf.
Eftirlitið var ekki það eina sem fór úrskeiðis að mati Barr en klefafélagi Epstein var fluttur í annað fangelsi daginn áður en Epstein lést. „Ég held að það hafi verið mikilvægt að hafa klefafélaga og við erum að kanna hvers vegna svo var ekki. Ég held að fátt annað bendi til þess en að mistök hafi átt sér stað,“ segir Barr í viðtali við AP-fréttastofuna.
Barr segir rannsókn á því hvað leiddi til dauða Epstein miða vel og hann er vongóður um að niðurstöður liggi fyrir innan tíðar.