Hundraða milljóna króna samningur

 Í dag undirritar Soffía Vagnsdóttir, oddviti K-listans og fyrrverandi formaður bæjarráðs Bolungarvíkur, ásamt systkinum sínum 400 milljóna króna samning við þýsku ferðaskrifstofuna Kingfisher Reisen. Í samningnum er kveðið á um smíði 25 húsa og 25 báta fyrir ferðamenn sem koma í stangveiði til Bolungarvíkur. „Þetta er samningur til fimm ára og á tímabilinu munum við byggja hér 25 hús í anda gömlu verbúðanna. Það er verið að hanna þau inn í umhverfið. Bátarnir eiga að taka fjóra til sex stangveiðimenn sem koma hingað og leigja hús og bát í eina viku. Uppbygging í Bolungarvík í tengslum við verkefnið hljóðar upp á tæpar 300 milljónir króna,“ greinir Soffía frá.

Öfund og afbrýði

Hún segir þau systkinin eiga bænum gjöf að gjalda. „Það var frábært að alast hér upp og við viljum eiga þátt í að gæða samfélagið lífi. Verst er hins vegar þegar samfélagið tekur upp á því að éta sjálft sig innan frá. Ég á þá við ef menn fyllast öfund og afbrýði vegna umfangsmikilla framkvæmda annarra.“ Soffía, sem er skólastjóri grunnskólans í Bolungarvík, kveðst hafa velt því mikið fyrir sér hvað geti mögulega hafa legið að baki samstarfsslitum A-listans við K-listann í apríl síðastliðnum. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég þætti of fyrirferðarmikil, eins og beinlínis hefur verið lýst yfir. Oddviti A-listans, Anna Guðrún Edvardsdóttir, sagði að samningur minn og systkina minna við Íslenska aðalverktaka um að veita þeim mönnum sem vinna að gerð ganga milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar fæði og húsaskjól hefði verið kornið sem fyllti mælinn. Ég hafði ekki áttað mig á því að hún og hennar fólk hefðu verið með mæliglös á borðinu sem þau tíndu sandkorn í. Viðhorf mitt til verka er hins vegar þannig að ég fer ekki í fýlu þótt ég fái ekki mínu framgengt. Ég segi skoðun mína og held svo áfram að vinna að því sem þarf. Auðvitað kostar það fé að framkvæma. Að segja að við höfum verið óábyrg í fjármálum eru hræðilega veik rök. Ef framkvæmdir eru stöðvaðar verður stöðnun sem er versti óvinur þróunar.“

Opnað fyrir stóriðju

Klausa í málefnasamningi nýrrar bæjarstjórnar A- og D-lista í Bolungarvík varð tilefni enn frekari vangaveltna Soffíu. „Í þessum nýja málefnasamningi er opnað á möguleika á stóriðju á Vestfjörðum. Ég verð að viðurkenna að ég hrökk svolítið í kút við þá tilhugsun að markmiðið hafi mögulega verið að nota mig og Grím Atlason, fyrrverandi bæjarstjóra, sem blóraböggla og skella okkur út eins og skákmönnum af taflborðinu til að koma hugmyndinni um olíuhreinsunarstöð áleiðis. En þótt ég sé komin í minnihluta og Grímur sé ekki lengur bæjarstjóri eru raddir okkar ekki hættar að heyrast. Vestfirðingar þurfa ekki olíuhreinsistöð. Ef Íslendingar sækja um undanþágu vegna mengunarkvóta eru þeir að móðga landið sitt. Olíuhreinsistöð myndi eyðileggja þorskeldi hér og starfsemi sprotafyrirtækja sem vinna afurðir úr náttúrunni.“

Breytt nálgun við sjóinn

Soffía kveðst viss um að Bolvíkingar rífi sig upp úr lægðinni sem gengið hefur yfir. Hún tekur það jafnframt fram að ýmsir eigi ef til vill erfitt með að venjast tilhugsuninni um breytta atvinnuhætti. „Nálgunin við sjóinn er til dæmis að breytast. Í stað þess að borga sjómönnum fyrir að fara um borð og sækja fiskinn koma menn að utan og borga okkur fyrir að fá að fara um borð í bátana til að veiða fisk. Samningurinn sem undirritaður verður í dag snýst um þess háttar þjónustu.“

Erlendu ferðamennirnir eiga einnig að fá að kynnast menningu staðarins, að sögn Soffíu. „Við systkinin erum öll tónlistarfólk og við ætlum að bjóða ferðamönnum upp á tónlist og stuð á meðan þeir dvelja hér.“

Í hnotskurn
Meirihlutasamstarfi A-lista og K-lista í Bolungarvík var slitið 21. apríl síðastliðinn. Fulltrúar A-lista og D-lista mynduðu nýjan meirihluta 24. apríl.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert