Yfirvinnubann ljósmæðra tók gildi nú á miðnætti en Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að hættuástand væri að skapast á spítalanum.
Páll sagði að með yfirvinnubanninu færðist vandinn víðar. Hann sé ekki eingöngu á meðgöngu- og sængurkvennagangi heldur einnig á fæðingargangi. Auk þess er yfirvinnubann á öðrum stofnunum sem hafa létt undir með Landspítalanum.
„Kjaradeilur og heilbrigðisþjónusta er alltaf eitruð blanda en hún er alveg sérstaklega eitruð hér þegar um fæðandi konur er að ræða,“ sagði Páll.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sögðu í gær að ekki hefði verið rætt að setja lög á yfirvinnubannið. Svandís sagðist enn telja að raunhæft væri að deiluaðilar gætu samið.
Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilunni á mánudaginn eftir tæpa viku klukkan 10 í húsnæði ríkissáttasemjara.