Tekinn á 171 km hraða

Sautján ára ökumaður var tekinn á 171 km hraða á Vesturlandsvegi við gatnamót Suðurlandsvegar um hálf tvö í nótt, samkvæmt upplýsingum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hámarkshraði þar sem pilturinn var stöðvaður er 80 km.

Ökumaðurinn var sviptur ökuskírteininu á staðnum, og má þar að auki búast við að hljóta umtalsverða sekt, samkvæmt upplýsingum LRH.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert