Fyrsti úrslitaleikur Dortmund í ellefu ár

Liðsmenn Dortmund fagna sigurmarkinu.
Liðsmenn Dortmund fagna sigurmarkinu. AFP/Miguel Medina

Þýska liðið Dortmund leikur til úrslita í Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir útisigur á París SG frá Frakklandi í gærkvöldi, 1:0. Dortmund vann fyrri leikinn með sömu markatölu og einvígið því 2:0. Varnarmaðurinn reynslumikli Mats Hummels skoraði sigurmarkið á 50. mínútu.

Dortmund mætir annaðhvort Real Madrid eða Bayern München í úrslitum, en þau mætast í kvöld. Skildu þau jöfn, 2:2, í fyrri leiknum.  

Dortmund lék síðast til úrslita árið 2013 og tapaði þá fyrir Bayern á Wembley, 2:1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert