Toure í viðræðum við Barcelona

Yaya Toure mun væntanlega ganga til liðs við Barcelona.
Yaya Toure mun væntanlega ganga til liðs við Barcelona. Reuters

Barcelona er í viðræðum við Monaco um kaup á Yaya Toure 24 ára gömlum landsliðsmanni frá Fílabeinsströndinni. Toure, sem er miðjumaður og yngri bróðir Kolo Toure varnarmanns Arsenal, kom til Barcelona í dag til viðræðna við forráðamenn félagsins að því er fram kemur á vef Barcelona í dag.

,,Barcelona er eitt besta lið í heimi og það yrði frábært að fá tækifæri til að spila með því," sagði Toure við fréttamenn á flugvellinum í Barcelona í dag.

Börsungar vilja gera við hann fjögurra ára samning en hann gekk til liðs við Monaco frá gríska liðinu Olympiakos í fyrra og gerði fjögurra ára samning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert