Íslendingarnir mæta Dönum í Meistaradeildinni

Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason …
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason leika fyrir Magdeburg Ljósmynd/@SCMagdeburg

Dregið var í undanúrslit í Meistaradeildum karla og kvenna í handbolta í Búdapest rétt í þessu en ríkjandi meistarar Magdeburg munu mæta danska liðinu Aalborg.

Í hinum undanúrslitaleiknum karlamegin mætast Barcelona og Kiel.

Fimmfaldir meistarar Györi mæta Team Esbjerg frá Danmörku kvennamegin, hin viðureignin er á milli Metz og SG Bietigheim.

Úrslitahelgi kvenna fer fram í Búdapest í Ungverjalandi 1. og 2. júní en karlamegin verður spilað helgina eftir, 8. og 9. júní í LANXESS arena í Köln.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert