Ekki þótti ástæða til að gera gjaldmiðlaskiptasamning

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ómar

Seðlabanki Íslands hefur átt viðræður við Seðlabanka Bandaríkjanna á undanförnum vikum um gerð gjaldmiðlaskiptasamnings. Ekki voru taldar ástæður eða efni til þess að gera á þessu stigi samning við Seðlabanka Íslands. Alls ekki væri þó útilokað að slíkur samningur yrði gerður síðar ef aðstæður gefa tilefni til. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

„Eins og komið hefur fram í fréttum hefur Seðlabanki Bandaríkjanna gert tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamninga við fjóra seðlabanka til þess að leysa úr bráðaþörf fyrir Bandaríkjadali sem upp kom í viðkomandi löndum. Samningar þessir eru annars eðlis en þeir sem Seðlabanki Íslands gerði við þrjá norræna seðlabanka í maí sl.," segir í tilkynningu Seðlabankans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK