Dragi til baka kaupaukagreiðslur

Mynd/Skjáskot af heimasíðu Klakka

Stjórn Klakka hefur ákveðið að mæla með því við hluthafa félagsins að fyrirhugaðar kaupaukagreiðslur, sem hluthafafundur samþykkti á mánudag, verði dregnar til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Ástæðan fyrir ákvörðuninni er sögð vera hin hörðu viðbrögð sem kaupaukagreiðslurnar hafa vakið hjá almenningi.

„Stjórnin hefur hlýtt á þær athugasemdir sem fram hafa komið og og telur að óhjákvæmilegt sé að bregðast við til að skapa traust í garð félagsins. Slíkt traust sé enda grundvallaratriði fyrir alla sem stunda viðskipti á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.

Stærsta eign Klakka er Lykill, sem hefur verið umsvifamikið í fjármögnun bifreiða- og atvinnutækja hér á landi á síðustu árum. Vill stjórn Klakka með þessari ákvörðun stuðla að því að friður geti ríkt um Lykil og þannig hámarkað virði félagsins í þágu allra hluthafa.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK