Hlutafé í flugfélaginu WOW air var nýlega aukið úr rétt tæplega 107 milljónum í tæplega 162 milljónir hluta, eða sem nemur 54,9 milljónum hluta. Voru upplýsingar um breytinguna uppfærðar í fyrirtækjaskrá á föstudaginn. Það er vefurinn Túristi sem greindi fyrst frá þessu.
Segir í frétt miðilsins að Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri WOW air, hafi í svari til Túrista sagt breytinguna helgast af því að hann hefði sett eignarhlut sinn í Cargo Express ehf. inn í WOW air á síðasta ársfjórðungi. Þá hafi hann breytt kröfum sínum á hendur WOW air í eigið fé.
WOW air tapaði í fyrra um 22 milljónum dala, eða sem nemur 2,4 milljörðum króna. Á sama tíma hefur farþegum félagsins fjölgað mikið sem og áfangastöðum sem félagið flýgur til.