Icelandair ætlar að hefja flug til þriggja borga í Þýskalandi, þrisvar sinnum í viku, frá og með 15. júní, en þetta bætist við fyrri áform félagsins um að hefja daglegar flugferðir til Kaupmannahafnar frá 15. júní og fjórum flugferðum á viku til Amsterdam frá 16. júní.
Icelandair greinir frá fluginu til Þýskalands í tölvupósti sem sendur var út núna í hádeginu.
Borgirnar þrjár sem um ræðir eru Berlín, München og Frankfurt.
Eins og greint var frá í morgun hafa sex flugfélög tilkynnt um áform sín um flugferðir um Keflavíkurflugvöll í sumar. Ungverska flugfélagið Wizz Air ríður á vaðið með ferð til flugvallarins London Luton í kvöld.
Hin flugfélögin sem ætla að fljúga frá Keflavík í sumar eru Atlantic Airways, Czech Airlines, Icelandair, SAS og Transavia.
Samkvæmt upplýsingum sem ríkisstjórnin sendi út í hádeginu munu ferðalangar sem hingað koma til lands þurfa að greiða 15 þúsund fyrir sýnatöku eða fara í tveggja vikna sóttkví.