Eyðir jólunum í Los Angeles

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Ljósmynd/Brynjar Gauti

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir ætlar að eyða jólunum í Los Angeles án eiginmannsins því hann verður að skemmta börnum í Detroit um jólin.

Hvernig gengur jólaundirbúningurinn? „Hann rokgengur ekki neitt. Er bara enn á kafi í vinnu. Keypti þó nokkrar jólarósir.“

Hvað kemur þér í jólaskap? „Tónlist.“

Með hverjum eyðir þú jólunum? „Með börnunum mínum í LA, Stefán verður að stela jólunum af annarra manna börnum í Detroit.“

Hvað borðar þú bara í desember? „Nóakonfekt, skötu og malt og appelsín.“

Gerir þú eitthvað sérstakt til þess að halda þér í formi yfir jólin? „Nei.“

Hvað borðar þú á aðfangadag, jóladag og annan í jólum? „Það er ekki ákveðið... eitthvað gott og hátíðlegt.“

Hvað finnst þér best við jólin? „Jólin eru fín afsökun til að hvíla sig og hafa það svolítið notalegt með sínum nánustu.“

Hvaða jólagúmmelaði er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Rjúpur.“

Hvað langar þig í í jólagjöf? „Kindle og kossa og auðvitað frið á jörð og farsælt komandi ár!“

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona. Ljósmynd/Snorri Sturluson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál