Harry Bretaprins og leikkonan Meghan Markle hafa reynt að fara leynt með samband sitt síðan þau byrjuðu að stinga saman nefjum, enda áhugi fjölmiðla og heimsbyggðarinnar mikill.
Á dögunum mættu þau þó loksins í sameiningu á opinberan viðburð, en skötuhjúin voru viðstödd opnunarhátíð Invictus-leikanna um helgina. Þau fengu þó ekki að sitja saman, en létu það þó lítið á sig fá.
Frétt mbl.is: (Næstum) saman í opinberri heimsókn
Parið hefur verið duglegt að spóka sig saman undanfarna daga, en segja má að þau líti út fyrir að vera yfir sig ástfangin. Þá hefur klæðnaður Markle vakið mikla eftirtekt, sér í lagi skyrta sem leikkonan skartaði í gær.
Samkvæmt frétt Mirror klæddist leikkonan látlausri, hvítri skyrtu sem vinkona hennar, Misha Nonoo, hannaði. Umrædd skyrta gengur undir heitinu „the husband“ eða eiginmaðurinn og kostar rúmlega 32 þúsund krónur.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem klæðnaður Markle vekur umtal, en kjóll sem hún klæddist á opnunarhátíð leikanna seldist upp á svipstundu.
Frétt mbl.is: Í 20 þúsund króna kjól á fyrsta opinbera viðburðinum