Valskonur vörðu bikarmeistaratitilinn

Katrín Jónsdóttir fyrirliði Vals hefur bikarinn á loft.
Katrín Jónsdóttir fyrirliði Vals hefur bikarinn á loft. mbl.is/Ómar

Stjarnan og Valur áttust við í úrslitum VISA-bikars kvenna í knattspyrnu kl. 16 á Laugardalsvelli. Valur var handhafi bikarmeistaratitilsins en Stjarnan hafði aldrei landað titlinum. Valur varði titil sinn en sjálfsmark á 12. mínútu réði úrslitum í leiknum. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Byrjunarlið Stjörnunnar: Sandra Sigurðardóttir, Katie McCoy, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir, Kristrún Kristjánsdóttir, Margrét Guðný Vigfúsdóttir, Inga Birna Friðjónsdóttir, Laura King, Anna Björk Kristjánsdóttir, Lindsey Schwartz, Írunn Þorbjörg Aradóttir.

Byrjunarlið Vals: María Björg Ágústsdóttir, Pála Marie Einarsdóttir, Rakel Logadóttir, Katrín Jónsdóttir, Kristín Ýr Bjarnadóttir, Dóra María Lárusdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Dagný Brynjarsdóttir, Thelma Björk Einarsdóttir, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir, Embla Sigríður Grétarsdóttir.

Hart barist í leik Vals og Stjörnunnar í dag.
Hart barist í leik Vals og Stjörnunnar í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson
Stjarnan 0:1 Valur opna loka
90. mín. Leik lokið Örvar er búinn að flauta til leiksloka og þar með er ljóst að Visabikarinn verður áfram á Hlíðarenda.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert