FH skellti Breiðabliki - Valur með pálmann í höndunum

Úr leik Stjörnunnar og Þórs/KA í dag á Stjörnuvelli. stækka

Úr leik Stjörnunnar og Þórs/KA í dag á Stjörnuvelli. mbl.is/Golli

Heil umferð fer fram í úrvalsdeild kvenna í dag, Pepsí-deildinni, en um er að ræða 16. umferð af alls 18.  Fjórir leikir hófust kl. 14 en leikur Aftureldingar og Vals hefst kl. 17. Valur er með pálmann í höndunum og getur orðið meistari með sigri í Mosfellsbænum því bæði Breiðablik og Þór/KA töpuðu sínum leikjum. Mikil spenna er einnig í fallbaráttunni og nú munar aðeins tveimur stigum á Grindavík og FH. Fylgst var með gangi mála í leikjum dagsins á mbl.is.

15:57 Mark!! Þvílík dramatík á lokamínútunum í Grindavík þar sem heimaleiðinu tókst að jafna 2:2 með tveimur mörkum í uppbótartíma. Shaneka Gordon og Rachel Furness skoruðu mörkin og í kjölfarið fékk María Arngrímsdóttir sitt annað gula spjald hjá Grindavík og þar með rautt. 

15:46 Mark!! Inga Birna Friðjónsdóttir var að skora fyrir Stjörnuna á 88. mínútu. Inga skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu.

15:39 Mark!! Spennan er að aukast til mikilla muna í fallbaráttunni. Haukar voru að bæta við öðru marki í Grindavík. Eva Jenný Þorsteinsdóttir skoraði með þrumuskoti á 76. mínútu. 

15:36 Mark!! Mateja Zver var að jafna leikinn fyrir Þór/KA gegn Stjörnunni úr vítaspyrnu á 78. mínútu. Örugg spyrna hjá Zver þó Sandra hafi farið í rétt horn. Rakel Hönnudóttir fékk vítið eftir að hafa náð valdi á stungusendingu með frábærri fyrstu snertingu.

15:27 Mark!! Þór/KA og Breiðablik eru bæði undir í sínum leikjum. Katie McCoy var að skora fyrir Stjörnuna úr vítaspyrnu sem Inga Birna Friðjónsdóttir fékk. Katie skoraði af miklu öryggi á 69. mínútu. 

15:22 Mark!! Nú berast heldur betur tíðindi úr Hafnafirðinum. FH hefur snúið blaðinu við gegn Breiðabliki og er yfir 3:2. Sigríður Guðmundsdóttir jafnaði leikinn úr vítaspyrnu og Liliana Martins bætti við þriðja markinu. Eins og staðan er núna í leikjum dagsins eru Valskonur með pálmann í höndunum og geta orðið meistarar í Mosfellsbænum í dag. Eins á FH von um að halda sér uppi því Grindavík er undir gegn Haukum á heimavelli. 

15:21 Mark!! Fylkir hefur jafnað í Vesturbænum. Það gerði markadrottningin Anna Björg Björnsdóttir á 52. mínútu.

14:50 Mark!! Botnlið Hauka er komið yfir í Grindavík. Sara Jordan skoraði á markamínútunni 43. með þrumuskoti. 

14:39 Mark!! Stjarnan hefur jafnað gegn Þór/KA  1:1. Markið lá í loftinu en Stjörnukonur höfðu tvívegis verið aðgangsharðar upp við mark Þórs/KA eftir að gestirnir komust yfir. Inga Birna Friðjónsdóttir sendi fyrir markið frá hægri og Rachel Rapinoe skaut í slána en Soffía Gunnarsdóttir fylgdi á eftir og skallaði knöttinn í netið.

14:32 Mark!! FH tókst að jafna gegn Breiðabliki 1:1 en Blikar náðu aftur forystunni og eru yfir 2:1. Sigrún Ella Einarsdóttir jafnaði fyrir FH á 24. mínútu en Jóna Kristín Hauksdóttir svaraði fyrir Breiðablik á 28. mínútu.

14:26 Mark!! Í Frostaskjóli er komið mark hjá KR og Fylki. Katrín Ásbjörnsdóttir kom KR yfir á 23. mínútu. 

14:23 Mark!! Breiðablik hefur tekist að brjóta ísinn gegn FH. Landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði á 15. mínútu.

14:15 Mark!! Akureyringar hafa náð forskoti í Garðabænum. Mateja Zver slapp ein inn fyrir vörn Stjörnunnar og var rétt á undan Söndru Sigurðardóttur markverði Stjörnunnar í boltann en Sandra var komin út úr vítateignum. Zver setti boltann snyrtilega á milli fóta Söndru og lék inn í vítateiginn. Þar voru þrír varnarmenn Stjörnunnar búnar að koma sér fyrir en Zver náði að lauma boltanum neðst í hægra hornið. Afar snyrtilega gert.

14:14 Vesna Smilkojvic fór rétt í þessu illa með algert dauðafæri fyrir Þór/KA gegn Stjörnunni í Garðabænum. Rakel komst í færi hægra megin í teignum en í stað þess að skjóta sendi hún frábæra sendingu fyrir markið á Smilkojvic sem þurfti bara að koma boltanum í opið markið en hitti ekki markið.

14:05 Í Garðabænum er hífandi rok og aðstæður mjög erfiðar fyrir leikmenn sem eiga fullt í fangi með að hemja boltann á gervigrasinu.

Úrslit í leikjum dagsins:

Grindavík – Haukar 2:2 - Leik lokið
- Sara Jordan 43., Eva Jenný Þorsteinsdóttir 76.                          
KR – Fylkir 1:1 - Leik lokið
Katrín Ásbjörnsdóttir 23. - Anna Björg Björnsdóttir 52.                          
FH – Breiðablik 3:2 - Leik lokið
Sigrún Ella Einarsdóttir 24., Sigríður Guðmundsdóttir (víti), Liliana Martins - Sara Björk Gunnarsdóttir 15., Jóna Kristín Hauksdóttir 28.
Stjarnan – Þór/KA 3:2 - Leik lokið
Soffía Gunnarsdóttir 37., Katie McCoy 69. (víti), Inga Birna Friðjónsdóttir 88. - Mateja Zver 15. , 78. (víti).                            
Afturelding  – Valur kl 17:00

Staðan í deildinni:

1.  Valur 36 stig
2. Breiðablik 32 stig
3. Þór/KA 31 stig
4. Stjarnan 25 stig
5. Fylkir 23 stig
6. KR 22 stig
7. Afturelding 16 stig
8. Grindavík 14 stig
9.  FH 10 stig
10. Haukar 5 stig

 
Hallbera Guðný Gísladóttir leikmaður Vals í leik gegn KR.

Hallbera Guðný Gísladóttir leikmaður Vals í leik gegn KR. mbl.is/Árni Sæberg

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Mánudaginn 30. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Sunnudaginn 22. janúar

Laugardaginn 21. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar


finnur.is