Derby kaupir Eddie Lewis af Leeds

Eddie Lewis er kominn til Derby.
Eddie Lewis er kominn til Derby. ussoccer.com

Derby County, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, festu í dag kaup á bandaríska landsliðsmanninum Eddie Lewis frá Leeds United. Kaupverðið var ekki gefið upp.

Lewis er 33 ára gamall kantmaður og hefur spilað í Englandi í sjö ár, en hann lék með Fulham og Preston áður en hann gekk til liðs við Leeds fyrir tveimur árum. Þar spilaði hann 91 leik og skoraði 9 mörk.

Lewis á að baki 72 A-landsleiki fyrir Bandaríkin og hefur skorað í þeim 8 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert