Lee kominn til starfa hjá Liverpool

Sammy Lee er kominn heim til Liverpool.
Sammy Lee er kominn heim til Liverpool. Reuters

Sammy Lee hefur verið skipaður aðstoðarknattspyrnustjóri Liverpool og hóf hann störf í morgun á æfingasvæði Liverpool, Melwood. Lee, sem er 49 ára gamall, var sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri Bolton í október en hann var ráðinn til Bolton í stað Sam Allardyce.

Sammy Lee er vel kunnugur Liverpool. Hann lék með liðinu í mörg ár og varð Englandsmeistari, vann Evrópukeppni bikarhafa og enska deildarbikarinn með því og eftir að ferlinum lauk tók hann til starfa sem þjálfari hjá félaginu.

Hann var í þjálfarateymi enska landsliðsins en var ráðinn knattspyrnustjóri Bolton undir lok síðustu leiktíðar þegar Sam Allardyce ákvað að hætta. Lee staldraði hins vegar stutt við hjá Bolton en eftir brösótt gengi í byrjun tímabilsins var hann rekinn og Gary Megson ráðinn í hans stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert