Jafnt hjá Arsenal og Sevilla

Carlos Vela í baráttu við varnarmann Sevilla í kvöld.
Carlos Vela í baráttu við varnarmann Sevilla í kvöld. Reuters

Arsenal og Sevilla skildi jöfn, 1:1, á Amsterdam mótinu í Hollandi í kvöld. Carlos Vela kom Arsenal yfir strax á 4. mínútu en Espinosa jafnaði metin fyrir Spánverjana 10 mínútum fyrir leikslok.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, stillti upp mörgum af yngri leikmönnum félagsins og liðið var mun veikara en sigraði Ajax í gærkvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert