Burnley hirðir starfslið Wednesday

Brian Laws fylgist með liði Burnley í fyrsta leiknum sem …
Brian Laws fylgist með liði Burnley í fyrsta leiknum sem var gegn Manchester United á Old Trafford. Reuters

Burnley, félag Jóhannesar Karls Guðjónssonar í ensku úrvalsdeildinni, hefur fengið til sín nánast allt helsta starfslið Sheffield Wednesday. Það kemur í kjölfar þess að knattspyrnustjórinn Brian Laws, sem var sagt upp hjá Wednesday í desember, tók við liði Burnley í síðustu viku.

Það eru markvarðaþjálfarinn Billy Mercer, yfirnjósnarinn Tim Henderson og þrekþjálfarinn Tom Little sem nú eru komnir til Burnley og áður var aðstoðarþjálfarinn Russ Wilcox kominn til starfa á Turf Moor, frá Wednesday.

Þá hefur reyndasti leikmaður Burnley, miðjumaðurinn Graham Alexander, verið ráðinn þjálfari samhliða því að spila með liðinu. Hann er elsti útispilarinn í úrvalsdeildinni, 38 ára gamall.

Svona ganga kaupin oft á eyrinni í enska fótboltanum en þegar Owen Coyle yfirgaf Burnley til að taka við Bolton fyrir skömmu fylgdi honum nánast allt starfsliðið hjá Burnley.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert