„Ég lifi’ í draumi . . .“

Hamilton fagnar öðru sætinu í Barcelona.
Hamilton fagnar öðru sætinu í Barcelona. reuters

Lewis Hamilton segist það draumi líkast að vera einn í forystu stigakeppninnar um heimsmeistaratitil ökuþóra í formúlu-1, eftir annað sætið í Spánarkappakstrinum í Barcelona í dag.

Fyrir mótið var Hamilton eini ökuþór sögunnar sem komist hafði á verðlaunapall í fyrstu þremur mótum keppnisferilsins í formúlu-1. Að loknum kappakstri í dag er hann efstur í keppninni um titil ökuþóra með 30 stig en annar er liðsfélagi hans og ríkjandi meistari, Fernando Alonso, með 28 stig.

Lewis Hamilton hefur í öllum mótunum fjórum til þessa haft forystu í kappakstrinum um skeið, auk þess að hafna á palli í þeim öllum.

„Ég segi bara sem fyrr, ég lifi í draumi, það er alveg satt,“ sagði Hamilton eftir kappaksturinn. „Ég hef lagt svo hart að mér til að komast þetta langt, en að vera með forystu í keppninni eftir fjögur mót og toppmennina tvo hér við hlið er ótrúlegt,“ bætti hann við.

Hamilton náði góðri ræsingu sem oft fyrr og tók fram úr Kimi Räikkönen á Ferrari á fyrstu metrunum og síðan fram úr Alonso er hann lenti útaf brautinni eftir samstuð við Felipe Massa í fyrstu beygju.

Hann átti hins vegar aldrei neinn möguleika á að komast í tæri við Massa. Hann telur McLaren þó smám saman vera að draga Ferrari uppi.

Auk forystu Hamiltons í keppni ökuþóra er McLaren efst í stigakeppni bílsmiða með 58 stig gegn 49 stigum Ferrari að loknum fjórum mótum. Þau eru í sérflokki því BMW er þriðja með 23 stig. Þrjú mótin hefur Ferrari unnið en McLaren eitt.

Hamilton ánægður á pallinum í Barcelona með forystu í keppni …
Hamilton ánægður á pallinum í Barcelona með forystu í keppni ökuþóra. reuters
Hamilton með Räikkönen á eftir sér á fyrstu hringjum í …
Hamilton með Räikkönen á eftir sér á fyrstu hringjum í Barcelona. reuters
Hamilton (l.t.v.) varð í öðru sæti þriðja mótið í röð. …
Hamilton (l.t.v.) varð í öðru sæti þriðja mótið í röð. Hér er hann ásamt Massa og Alonso í Barcelona í dag. reutes
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert