Liuzzi í stað Fisichella

Liuzzi, milli Fisichella (l.t.v.) og Sutil.
Liuzzi, milli Fisichella (l.t.v.) og Sutil. mbl.is/forceindiaf1

Force India liðið hefur ákveðið að þriðji ökuþór liðsins, Vitantonio Liuzzi, taki við af Giancarlo Fisichella sem genginn er á vit Ferrari. Keppir Liuzzi því í ítalska kappakstrinum í Monza.

Liuzzi hefur ekki keppt í formúlu-1 frá árinu 2007 og ekki ekið formúlubíl frá í nóvember sl. Sjálfur telur hann það ekki stóra hindrun og er bjartsýnn á að geta sýnt góðan árangur á ört vaxandi keppnisbíl Force India.

Óljóst er af fregnum og tilkynningum liðsins hvort Liuzzi sé einungis staðfestur sem ökuþór í Monza eða jafnvel út veretíðina.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert