Aftur ekur Hamilton hraðast

Hamilton bíður milli aksturslota á seinni æfingunni í Sepang.
Hamilton bíður milli aksturslota á seinni æfingunni í Sepang. reuters

Lewis Hamilton hjá McLaren ók aftur hraðast, á seinni æfingu dagsins, í Sepang í Malasíu. Næst besta tímann setti Sebastian Vettel hjá Red Bull og þann þriðja besta Nico Rosberg hjá Mercedes.

Hóp 10 efstu ökumanna skipuðu nær sömu ökumenn og á fyrri æfingunni. Rosberg varð aðeins tveimur þúsundustu úr sekúndu fljótari með hringinn en Jenson Button hjá McLaren. 

Í næstu sætum urðu Michael Schumacher, sem um skeið átti besta tíma þar til Hamilton sló frá sér, Robert Kubica, Fernando Alonso, Sebastien Buemi, Vitaly Petrov, Adrian Sutil.

Flestir ökumannanna settu sína bestu tíma á mýkri dekkjunum en hver á fætur öðrum kvartaði undan þeim og sögðu jafnvægi í bílnum skorta, tilhneigingar til vanstýringar gæta og afturendann gripvana með þau undir. Áttu ökumenn og erfitt með að halda sér á brautinni meðan þeir reyndu að temja mýkri dekkin.

Endingarskortur heldur áfram að hrella Red Bull því Mark Webber varð að leggja bíl sínum í malargryfju við brautarjaðar við níundu beygju eftir skamman akstur. Talið var að um mótorbilun hafi verið að ræða.

Ferrariþórarnir völdu að nota tímann að mestu til að keyra í löngum lotum með fulla bensíntanka. Voru þeir þá lengstum fjórum sekúndum lengur að aka hringinn en fremstu menn og lágu í 17. og 19. sæti tímalistans.

Það var ekki fyrr en alveg í lokin að þeir Fernando Alonso og Felipe Massa settu mýkri dekkin undir. Þá var eins og slegið hafi veri ðí klárinn því Alonso skaust upp í sjöunda sæti. Massa bætti sig minna og átti 15. besta tímann að lokum.

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Bil Hri.
1. Hamilton McLaren 1:34.175 27
2. Vettel Red Bull 1:34.441 +0.266 28
3. Rosberg Mercedes 1:34.443 +0.268 30
4. Button McLaren 1:34.538 +0.363 24
5. Schumacher Mercedes 1:34.674 +0.499 30
6. Kubica Renault 1:35.148 +0.973 34
7. Alonso Ferrari 1:35.581 +1.406 34
8. Buemi Toro Rosso 1:35.660 +1.485 39
9. Petrov Renault 1:35.872 +1.697 20
10. Sutil Force India 1:35.957 +1.782 32
11. Kobayashi Sauber 1:36.018 +1.843 38
12. Liuzzi Force India 1:36.221 +2.046 34
13. de la Rosa Sauber 1:36.325 +2.150 33
14. Alguersuari Toro Rosso 1:36.325 +2.150 39
15. Massa Ferrari 1:36.602 +2.427 30
16. Barrichello Williams 1:36.813 +2.638 26
17. Hulkenberg Williams 1:37.415 +3.240 19
18. Trulli Lotus 1:38.454 +4.279 34
19. Kovalainen Lotus 1:38.530 +4.355 32
20. Webber Red Bull 1:38.786 +4.558 13
21. Glock Virgin 1:39.061 +4.886 23
22. di Grassi Virgin 1:39.158 +4.983 29
23. Chandhok HRT 1:41.084 +6.909 27
24. Senna HRT 1:41.481 +7.306 32
Hamilton á seinni föstudagsæfingunni í Sepang.
Hamilton á seinni föstudagsæfingunni í Sepang. reuters
Rosberg ræðir við vélvirkja milli aksturslota í nótt.
Rosberg ræðir við vélvirkja milli aksturslota í nótt. reuters
Massa (t.v.) og Alonso voru ekki að flýta sér á …
Massa (t.v.) og Alonso voru ekki að flýta sér á seinni æfingunni í Sepang. reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert