Webber: Tilbúnir í slaginn

Webber í Barcelona.
Webber í Barcelona. reuters

Mark Webber sagði eftir æfingar formúluliðanna í dag í Barcelona, að Red Bull liðið væri klárt til keppni, en fyrsta mót vertíðarinnar fer fram eftir rúman hálfan mánuð í Melbourne.

Webber sagði niðurstöðuna af reynsluakstrinum í dag hvetjandi en hann setti besta brautartímann.  Hefur liðinu tekist að bæta bílinn mjög, að sögn Webbers, í vetur.

Og hann segist farinn að klæja í lófana eftir því að geta hafið keppni, ekki síst til að fá úr því skorið hvar liðið stendur í samanburði við önnur lið.

Red Bull vann báða heimsmeistaratitla formúlunnar í fyrra, liðið vann titil bílsmiða og Sebastian Vettel titil ökumanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert