Eiður Smári í síðasta leikmannhópnum sem Rijkaard velur

Eiður Smári Guðjohnsen í leik með Börsungum.
Eiður Smári Guðjohnsen í leik með Börsungum. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen hefur hrist af sér meiðsli og er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Murcia í lokaumferð spænsku 1. deildarinnar á morgun. Þetta verður síðasti leikur Barcelona undir stjórn Frank Rijkaards og hugsanlega munu einhverjir leikmenn leika kveðjuleiki sína með félaginu annað kvöld.


Edmílson tekur út leikbann en þeir Deco, Touré Yaya og Rafael Márquez eiga allir við meiðsla að stríða.


Leikmannahópur Barcelona: Valdés, Puyol, Xavi, Gudjohnsen, Eto'o, Zambrotta, Pinto, Henrio, Giovani, Ezquerro, Messi, Thuram, Abidal, Oleguer, Bojan, Rueda, Fali.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert