Pétur á heimavelli í Rotterdam

Pétur Pétursson
Pétur Pétursson mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Pétur Pétursson, aðstoðarlandsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, verður á heimavelli á laugardaginn þegar íslenska liðið mætir Hollendingum í Rotterdam. Þar er Pétur á heimavelli.

Hann fór til Feyenoord árið 1978 og gerði það tímabil 11 mörk í 16 leikjum með liðinu. Árið eftir varð hann bikarmeistari með félaginu og gerði þá meðal annars tvö mörk í úrslitaleiknum við Ajax, en Feyenoord vann 3:1. „Ég var hjá Feyenoord í tæp þrjú ár fyrst, fór síðan til Belgíu og kom svo aftur í eitt ár til Feyenoord áður en ég fór til Spánar,“ segir Pétur.

Hann segist hafa kunnað mjög vel við sig í Rotterdam. „Mér fannst alltaf eins og ég væri heima hjá mér þegar ég var í Rotterdam. Það var bara eins og Skaginn fyrir mér,“ segir Pétur í viðtali við Morgunblaðið.

Pétur ræðir dvölina í Hollandi og um leikinn á laugardaginn í Mogganum í dag.

Það er meira í Mogganum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert