Margrét Lára og Eiður Smári fremst knattspyrnufólks

Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eigast við í úrslitaleik …
Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eigast við í úrslitaleik bikarkeppninnar í haust. Þær höfnðu í tveimur efstu sætunum í kjöri á knattspyrnukonu ársins. mbl.is/Eggert

Margrét Lára Viðarsdóttir og Eiður Smári Guðjohnsen hafa verið valin knattspyrnukona og knattspyrnumaður ársins af Knattspyrnusambandi Íslands. Þetta þriðja árið í röð sem Margrét Lára verður fyrir valinu og í fjórða sinn á síðustu fimm árum sem Eiður Smári hreppir hnossið í karlaflokki.

Það eru fjölmargir aðilar,  m.a. fyrrverandi landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn í knattspyrnuhreyfingunni, er velja knattspyrnufólk ársins.  Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin hjá körlum og konum. 

Í öðru sæti í kvennaflokki varð Hólmfríður Magnúsdóttir og Dóra María Lárusdóttir hlaut þriðja sætið.

Veigar Páll Gunnarsson varð annar á eftir Eiði Smára. Grétar Rafn Steinsson hafnaði í þriðja sæti.

Nánar fjallað um kjörið á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.

Eiður Smári Guðjohnsen, fremsti knattspyrnukarl Íslands.
Eiður Smári Guðjohnsen, fremsti knattspyrnukarl Íslands. Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert