KR og Valur sigruðu

Ian Jeffs fagnar marki fyrir ÍBV. Hann fer vel af …
Ian Jeffs fagnar marki fyrir ÍBV. Hann fer vel af stað með Val. mbl.is/Árni Torfason

KR og Valur unnu í gærkvöld leiki sína á Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu. KR lagði Leikni R., 1:0, og Valur sigraði Fram, 1:0, en báðir leikirnir fóru fram í Egilshöllinni.

Atli Jóhannsson skoraði sigurmark KR gegn Leikni í upphafi síðari hálfleiks. Þetta var fyrsti leikur beggja liða í mótinu.

Ian Jeffs skoraði sigurmark Vals gegn Fram um miðjan síðari hálfleik en hann hefur gert öll þrjú mörk liðsins í mótinu til þessa. Valur hafði áður tapað 2:3 fyrir ÍR en þetta var fyrsti leikur Framara.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert