Messi missir af tveimur leikjum

Lionel Messi meiddist í leik um helgina með Barcelona þar …
Lionel Messi meiddist í leik um helgina með Barcelona þar sem hann var sparkaður niður. Reuters

Lionel Messi mun missa af tveimur næstu leikjum Barcelona í spænska fótboltanum. Argentínumaðurinn meiddist á ökkla um helgina í leik gegn Atletico Madrid og í fyrstu var talið að meiðslin væru alvarleg en í dag tilkynntu forráðamenn Barcelona að Messi yrði ekki eins lengi frá og talið var í fyrstu.

Messi missir af leikjunum gegn Sporting Gijon á miðvikudag á heimavelli Börsunga og af útileik gegn Bilbao. Messi var borinn af leikvelli undir lok leiksins gegn Atletico Madrid eftir að tékkneski leikmaðurinn Tomas Ujfalusi hafði brotið illa á Messi. Ujfalusi fékk rautt spjald í kjölfarið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert