Song gerir fimm ára samning við Börsunga

Alex Song.
Alex Song. AFP

Kamerúninn Alex Song stóðst læknisskoðun hjá spænska knattspyrnuliðinu Barcelona í dag og síðar í dag mun hann skrifa undir fimm ára samning við Katalóníuliðið.

Song er 24 ára gamall sem kemur til Börsunga frá Arsenal og er talið að Barcelona greiði 15 milljónir punda fyrir miðjumanninn sterka.

Song kom til Arsenal að láni frá franska liðinu Bastia í ágúst 2005 en í lok leiktíðarinnar gerði hann samning til frambúðar við Lundúnaliðið. Hann lék samtals 204 leiki með Arsenal-liðinu og skoraði í þeim 10 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert