Gylfi, Alfreð og Ragnar draga sig úr hópnum

Gylfi Þór verður ekki með í leiknum gegn Andorra.
Gylfi Þór verður ekki með í leiknum gegn Andorra. Ljósmynd/spurs-web

Garðar Jóhannsson, framherji Stjörnunnar, hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn sem mætir Andorra í vináttuleik á miðvikudaginn ytra en þeir Alfreð Finnbogason, Gylfi Þór Sigurðsson og Ragnar Sigurðsson drógu sig allir út úr hópnum vegna meiðsla.

Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi FCK í dag, Gylfi sat allan tímann á varamannabekk Tottenham og Alfreð spilaði allan leikinn fyrir Heerenveen í Hollandi.

Jón Daði Böðvarsson var einnig kallaður inn í hópinn eins og kom fram fyrr í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert