Victori líkt við Socrates

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. mbl.is/Eva Björk

Guðlaugur Victor Pálsson er í liði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem Tipsbladet valdi eftir áttundu umferð  deildarinnar sem lauk í gærkvöld.

Victor lék þá sinn fyrsta leik með Esbjerg, sem keypti hann af Helsingborg í Svíþjóð í lok ágúst, og átti mjög góðan leik þegar liðið vann OB, 4:2. Victor skoraði þriðja mark liðsins eftir hálftíma leik og fékk mikið hrós í dönskum fjölmiðlum, m.a. frá þjálfara Esbjerg.

Í umsögn um hann segir: „Framúrskarandi byrjun hjá Íslendingnum sem átti stórleik á miðjunni hjá Esbjerg. Í JydskeVestkysten er honum líkt við gamla brasilíska leikstjórnandann Socrates. Það er ekki vitlaust."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert