Björgvin og Stefán úr leik í stórsviginu

Stefán Jón í brautinni í gær, í undanúrslitunum.
Stefán Jón í brautinni í gær, í undanúrslitunum. Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson

Illa gekk hjá íslensku skíðaköppunum á HM í Frakklandi í dag, en þeir féllu báðir úr brautinni í stórsvigi í Val d´Isere.

Skíðakappinn Björgvin Björgvinsson frá Dalvík féll úr brautinni í stórsvigi  en hann var með rásnúmer 38. Stefán Jón Sigurgeirsson fór sömu leið, hoppaði uppúr skíðunum í töluverðum bratta, þar sem brautin var illa farin, en hann ræsti númer 74 af 75 keppendum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert