Tiger boðar komu sína á St. Andrews

Tiger Woods.
Tiger Woods. Reuters

Tiger Woods efsti kylfingur heimslistans hefur staðfest að hann mun að öllu óbreyttu taka þátt í opna breska mótinu sem haldið verður á St. Andrews 15. 18. júlí.

Tiger sendi frá sér yfirlýsingu vegna þessa og hafði þegar boðað komu sína á opna bandaríska mótið sem haldið verður á Pepple Beach í júní.

Tiger gat ekki lokið keppni á Players meistaramótinu á dögunum vegna meiðsla í hálsi. Þau meiðsli virðast þó ekki vera alvarleg enn sem komið er.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert