Tveimur leikjum frestað vegna veðurs

Augustas Strazdas og félagar í HK leika við ÍBV annað …
Augustas Strazdas og félagar í HK leika við ÍBV annað kvöld. Golli

Tveimur leikjum í úrvalsdeild karla, N1-deildinni, í handknattleik sem fram áttu að fara í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs.

HK og ÍBV áttu að leika í Digranesi en sá leikur hefur verið settur á að nýju kl. 19.30 annað kvöld.

Akureyri og Valur áttu að leika á Akureyri en sá leikur hefur verið settur á miðvikudaginn 5. desember kl. 19.

Hinir tveir leikirnir eru á sínum stað en Stjarnan og Haukar leika í Mýrinni í Garðabæ og Afturelding tekur á móti Fram að Varmá. Báðir hefjast kl. 20.00.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert