Tekur Guðmundur við GOG?

Guðmundur Guðmundsson.
Guðmundur Guðmundsson. mbl.is/Brynjar Gauti

Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik mun taka við þjálfun danska úrvalsdeildarliðsins GOG á næstu leiktíð ef marka frá fréttir danska blaðsins BT í dag.

GOG vill fá Guðmund til að taka við þjálfun liðsins af Ulf Schefvert sem mun taka við þjálfun kvennaliðs félagsins.

Með GOG leika tveir íslenskir landsliðsmenn, Snorri Steinn Guðjónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert