Haukar burstuðu Val í meistaraleiknum

Haukar eru meistarar meistaranna.
Haukar eru meistarar meistaranna. mbl.is/Árni Sæberg

Íslands- og bikarmeistarar Hauka í handknattleik burstuðu Val, 31:19, í árlegum leik meistarar meistaranna sem fram fór á Ásvöllum í kvöld en leikurinn markar upphaf á handboltavertíðinni.

Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæstur í liði Haukanna með 7 mörk og þeir Heimir Óli Heimisson og Þórður Rafn Guðmundsson skoruðu 5 mörk hvor. Hjá Valsmönnum var Valdimar Fannar Þórsson atvkæðamestur með 6 mörk og næstur kom Arnar Guðmundsson með 4 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert