Aðeins 34 mörk skoruð í sigri ÍBV

Esther Óskarsdóttir var markahæst ÍBV gegn FH.
Esther Óskarsdóttir var markahæst ÍBV gegn FH. mbl.is/Júlíus G. Ingason

ÍBV vann FH með ótrúlegum hætti í N1-deild kvenna í handknattleik í dag. ÍBV fékk aðeins tíu mörk á sig í öllum leiknum og aðeins fjögur mörk í seinni hálfleik en staðan í leikhléi var 11:6. Lokatölur urðu 24:10.

Esther Óskarsdóttir var markahæst í liði ÍBV með 6 mörk. Ivana Mladeuovic kom næst Esther með fjögur mörk. Hjá FH sem skoraði aðeins tíu mörk voru þær Ingibjörg Pálmadóttir og Steinunn Snorradóttir með helming markanna. Ingbjörg með þrjú og Steinunn tvö.

ÍBV er því eftir sigurinn með fjögur stig eins og Stjarnan og Haukar en FH enn með tvö stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert