Podolski liggur í rúminu

Lukas Podolski fagnar eftir að hafa skorað gegn Áströlum á …
Lukas Podolski fagnar eftir að hafa skorað gegn Áströlum á HM. Reuters

Ólíklegt þykir að Lukas Podolski verði leikfær með Þjóðverjum í kvöld þegar þeir mæta Úrúgvæ í leiknum um bronsverðlaunin á HM í knattspyrnu.

Podolski, sem hefur skorað tvö mörk fyrir Þjóðverja á HM og lagt upp önnur tvö, er með hita og læknar þýska liðsins hafa fyrirskipað honum að halda kyrru fyrir í rúminu.

Líklegast þykir að Toni Kroos leysi Podolski af hólmi í byrjunarliðinu. Liðsuppstilling Þjóðverja, sem og Úrúgvæja, verður birt laust fyrir klukkan 17.30 í dag en leikurinn hefst í Port Elizabeth klukkan 18.30.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert