Afa Messi finnst hann latur

Lionel Messi skoraði tvö mörk fyrir Argentínu gegn Nígeríu á …
Lionel Messi skoraði tvö mörk fyrir Argentínu gegn Nígeríu á HM í gær, án þess að það hafi hreyft of mikið við afa hans. AFP

Það getur verið erfitt að sitja undir gagnrýni frá samlöndum þínum, en sjálfsagt er það enn verra þegar einhver náskyldur þér gagnrýnir þig opinberlega.

Þrátt fyrir að skora tvö mörk fyrir Argentínu í 3:2-sigri á Nígeríu á HM í gær og vera kominn með 4 mörk í þremur leikjum á HM í Brasilíu var Antonio Cuccettini móðurafi Lionels Messi ekkert að skafa utan af því þegar hann gagnrýndi dótturson sinn fyrir frammistöðuna á HM við AS fjölmiðilinn og finnst Messi ekki hlaupa nógu mikið með landsliðinu.

„Mér finnst virka frekar latur. Á Spáni er hann mikið hraðari og kemur sér framhjá öllum andstæðingum. Hann þarf að ná upp þessu hugrekki sem hann spilar með á Spáni með landsliðinu á HM,“ segir afinn sem er þó sannfærður um að Messi eigi eftir að sýna betri frammistöðu með Argentínu á HM í Brasilíu en hann hefur þegar gert og telur hann eiga nokkuð inni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert