KR og Keflavík spáð Íslandsmeistaratitlinum

Það verða KR og Keflavík sem verða Íslandsmeistarar í körfuknattleik ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og formanna úrvalsdeildarliðanna í körfuknattleik, en árleg spá þeirra var kunngjörð í dag. KR verður meistari í karlaflokki og Keflavík í kvennaflokki.

Spáin í karlaflokki er þannig:

KR 398 stig
Snæfell 376
Grindavík 348
Njarðvík 327
Keflavík 296
Skallagrímur 246
ÍR 229
Hamar 141
Þór 129
Stjarnan 118
Fjölnir 117
Tindastóll 84.

Hjá konum er spaín þessi:

Keflavík 144
Haukar 115
Valur 92
Grindavík 91
KR 70
Hamar 48
Fjölnir 28

Einnig var birt spá fyrir 1. deild karla og er hún þannig að Breiðablik sigrar, Valur verður í öðru sæti síðan koma KFÍ, FSu, Haukar, Þór Þ., Ármann/Þróttur, Höttur, Þróttur V. og Reynir Sangerði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert