Nowitzki tryggði Dallas sigurinn

Dirk Nowitzki með boltann í leiknum í nótt en Ersan …
Dirk Nowitzki með boltann í leiknum í nótt en Ersan Ilasova hjá Milwaukee er til varnar. Reuters

Þýski risinn Dirk Nowitzki var Dallas Mavericks heldur betur dýrmætur í nótt. Á lokasekúndu framlengingar gegn Milwaukee Bucks á útivelli skoraði hann sigurkörfu liðsins, 115:113, með glæsilegu langskoti.

Boltinn lenti á körfuhringnum og snerti spjaldið áður en hann fór ofaní. „Þegar boltinn fór upp virtist hann aldrei ætla að koma niður. En heppnin var með okkur og við þurftum á því að halda," sagði Nowitzki sem þar með gerði 32 stig fyrir Dallas í leiknum. Jason Kidd var líka öflugur í liðinu, átti 17 stoðsendingar og tók 10 fráköst.

Nýliðinn Brandon Jennings skoraði 25 stig fyrir Milwaukee og jafnaði metin með þriggja stiga körfu fjórum sekúndum áður en Nowitzki tók til sinna ráða.

Atlanta vann Portland, 99:95, þar sem líka þurfti að framlengja, og Orlando sigraði Charlotte, 97:91.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert