Hljóp hálfmaraþon dripplandi körfubolta (myndskeið)

Ungur Bandaríkjamaður tók upp á því að hlaupa hálft maraþon, 21 kílómetra, dripplandi körfubolta alla vegalengdina.

Fréttamaðurinn Chase Matteson, íþróttafréttamaður hjá sjónvarpsstöðinni 10/11 í Lincoln í Nebraska-ríki í Bandaríkjunum, vakti athygli á þessu uppátæki Joe Huston.

Birti hann myndskeið af Huston á lokametrunum þar sem hann er enn dripplandi, missir boltann aðeins frá sér, nær aftur í hann og kemur svo í mark með því að taka hið svokallaða „Evrópuskref.“

Myndskeiðið má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert