Mikill áhugi á AuÐi I

Auður Capital hf. hefur lokið fjármögnun á sínum fyrsta fagfjárfestasjóði (Private Equity Fund) - AuÐi I.   Mikill áhugi reyndist vera meðal fjárfesta á þátttöku í sjóðnum, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu, og var heildarfjárhæð áskrifta 3,2 milljarðar króna.  Alls tóku 21 fjárfestir þátt og meðal þeirra eru flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins sem og aðrir stofnana- og fagfjárfestar.

AuÐur I mun nýta tækifæri sem felast í vaxandi mann- og fjárauð kvenna.  Sjóðurinn mun fjárfesta í starfandi fyrirtækjum sem hafa mikla vaxtarmöguleika.  Sérstaklega verður horft til fyrirtækja í eigu eða undir stjórn kvenna og fyrirtækja sem bjóða upp á vörur eða þjónustu sem höfða sértaklega til kvenna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK