Skilanefnd sem tók yfir stjórn Glitnis í kvöld hefur óskað eftir að Lárus Welding gegni áfram starfi forstjóra. Hefur hann samþykkt það. Þá hefur einnig verið óskað eftir því að stjórnendur og starfsfólk bankans haldi áfram störfum fyrir bankann
Í sklilanefndinni eru Árni Tómasson, formaður, lögg.endurskoðandi, Heimir Haraldsson, lögg.endurskoðandi, Steinunn Guðbjartsdóttir, hrl., Sverrir Örn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar og Ágúst Hrafnkelsson, innri endurskoðandi.