Krefjast 60 milljarða tryggingar frá Sparisjóðabankanum

Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt Sparisjóðabanka Íslands hf. að verðmæti óvarinna verðbréfa sem Sparisjóðabankinn hefur í veðlánunum hjá Seðlabankanum og útgefin voru af Glitni, Kaupþingi og Landsbanka, hafi verið endurmetin. Jafnframt krafði Seðlabankinn Sparisjóðabanka Íslands um auknar tryggingar vegna þeirra veðlána. Krafa um auknar tryggingar nemur um 60 milljörðum króna.

Sparisjóðabanki Íslands leitar nú samninga við Seðlabankann og /eða ríkissjóð vegna þessa endurmats Seðlabanka Íslands, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK