Ekki að leita að fjárfestingarmöguleikum

Alex Jurshevski (t.h.) með Colin Powell fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Alex Jurshevski (t.h.) með Colin Powell fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Forsvarsmenn Recovery Partners segja, að fyrirtækið sé ekki  sjóður sem leitist við að hagnast á kostnað fyrirtækja eða þjóða í vanda. Þá séu Recovery Partners hvorki við þessar aðstæður að leita eftir fjárfestingamöguleikum fyrir sig sjálfa né muni gera það í framtíðinni hvað snertir Ísland eða íslenska hagsmuni.

Þetta kemur fram í tilkynningu, sem Alex Jurshevski skrifar undir. Jurshevski kom fram í Silfti Egils fyrir rúmri viku og varaði þá við skuldasöfnun íslenska ríkisins og hvatti til þess að farið yrði gætilega í að þiggja frekari lánafyrirgreiðslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

„Lausn AGS felur að okkar mati í sér ákaflega mikla áhættu, er afar kostnaðarsöm og gefur nánast engan kost á nýju fjármagni, sem unnt væri að nýta til endurreisnar á efnahag Íslands. Þessi áhætta og kostnaður felur í sér verulega aukningu á skuldsetningu og útilokar fjárhagslegt samstarf Íslands við alla aðila aðra en AGS," segir meðal annars í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK